Wednesday, June 09, 2004

Jamm þá er það síðasti vinnudagurinn í þessari viku, fyrir mig það er! Ætlum að renna norður eftir hádegið, kíkja aðeins hinumegin á landið. Tónleikar uppi í Mývatnssveit á morgun þar sem flytja á lög eftir pabba, þýðir ekkert annað en að drífa sig á það. Maður hefur samt vinnulega séð engan tíma til að vera að ferðast þetta svo signt og heilagt, fyrst England og svo Mývó. Þýðir í raun bara sólahrings vaktir þegar maður kemur heim, en það er svo sem ekki svo slæmt maður ætti að geta slitið upp nokkra yfirvinnutíma þá. Svo er það bara Júró2004 framundan best að fara að koma sér í startholurnar!!

No comments: